Gundlungur bloggar heiminn
fimmtudagur, febrúar 28, 2008

3 Comments:

ég las samt, og hneykslaðist á íslenskufræðingnum að sleppa kommu á undan ávarpslið

By Blogger Erla Elíasdóttir, at 28. febrúar 2008 kl. 17:23  

eða á eftir ávarpslið...

By Blogger Erla Elíasdóttir, at 28. febrúar 2008 kl. 18:16  

akkúrat. ég ætlaði að leiðrétta þig en lét mér svo nægja að hrista hausinn yfir smámunaseminni í sjálfum mér.

en gott þú last.

By Blogger gulli, at 28. febrúar 2008 kl. 18:38  

Post a Comment

færsluna hér að neðan skrifaði Þorbjörg, ekki ég. hún var eitthvað pirruð yfir sambandsleysi mínu við umheiminn og brá á það ráð að skamma mig á opinberum vettvangi, fyrir framan vini mína og aðdáendur. það þótti mér leiðinlegt.
en ég er kannski að ýkja þegar ég nota orð eins og opinber vettvangur, vinir og aðdáendur. hingað kemur nefnilega enginn. teljarinn er til vitnis um það. teljarinn og núllið undir færslunum. hér er enda ekkert að finna nema óm af gömlu tuði sem aldrei hreyfði við nokkrum manni, og ég ef auk þess enga færslu skrifað í rúman mánuð.

en nú held ég áfram að tuða. tuða fyrir daufum eyrum um tuðið í mér sjálfum sem enginn sála meðtók. hvað get ég meira?

..vindinum eigna ég söng minn, sem engir heyra

-- Skreif Gulli kl.12:20 -- 3 Komment