u. marlon brando!
By Erla Elíasdóttir, at 13. mars 2008 20:02
nei, því miður. gott gisk samt.
frábært gisk.
þessi er e.t.v. betur þekktur fyrir söng sinn en leik, þótt hann geti reyndar bæði leikið og sungið
By gulli, at 14. mars 2008 11:12
Þetta er Harry Belafonte, alveg pottþétt!
Kv. Einar B (eða 7?)
By , at 14. mars 2008 12:31
ÞAÐ VAR RÉTT!!
Einar Björn sýnir hér gamalkunna takta. hann hefur greinilega engu gleymt síðan hann vann frækilegan sigur á þessari síðu í júlí 2006, þá nýbakaður faðir. sigurvegari í lífinu.
By gulli, at 14. mars 2008 16:22
Bls. 64 í 24 Stundum í dag.
Stendur þú fyrir þessu?!
By Gunni, at 15. mars 2008 07:38
nei, en ég sé að þeir beita sömu aðferðum og ég; stela af netinu og klippa út vatnsmerkið.
mikið djöfull hefur Tom Cruise annars verið ljótt barn
By gulli, at 17. mars 2008 12:30
já, þannig fór það. Hrafnhildur vissi svarið því hún er svo fjári glögg, enda barn foreldra sinna, eins og við reyndar öll, nema kannski Jesú sem var eingetinn að sögn. trúi því hver sem vill. en það var ekki ætlun mín að masa hér um allt og ekki neitt (þó tókst mér að ræða vitsmuni frænku minnar og fjölskylduhagi frelsarans í einni og sömu setningunni!). þið viljið fleiri getraunir, er það ekki?